Markþjálfun
Markþjálfun er ferli sem nýtir gagnreyndar aðferðir til persónulegs þroska. Hún byggir á sálfræði, stjórnunarfræðum, kennslu og uppeldisfræðum. Þetta er aðferðarfræði til að draga fram bestu eiginleika fólks. Hún er byggð á stuðningi, gagnkvæmu trausti og faglegri nálgun.
Markþjálfun snýst um að hjálpa þér að finna út hvert þú vilt stefna og hvað kemur í veg fyrir að þú náir settu marki. Leið markþjálfunar til þess er hreinskilin, skilvirk en ekki síst skemmtileg. Í stuttu máli má segja að markþjálfun felist í að uppgötva og virkja til fulls það sem býr innra með þér. Áhersla er lögð á að vinna frá nútíð til framtíðar og að styðja þig við að takast á við viðfangsefnið og ná árangri. Markþjálfun er samstarf þar sem farið er í skapandi og krefjandi ferli hugmynda sem hvetja fólk til að hámarka persónulega og faglega möguleika sína.
Markþjálfun er markmiðadrifið og lausnamiðað ferli þar sem markþjálfi aðstoðar einstakling við að greina mögulegar lausnir með því að varpa fram spurningum og opna á nýjar leiðir. Það hjálpar til við að bæta frammistöðu og ná árangri, taka meðvitaðri ákvarðanir og nýta styrkleika sína betur. Rannsóknir hafa sýnt að markþjálfun styttir leiðina að tilteknu markmiði, hjálpar þér að setja skýrari markmið og finna út hvert þú vilt stefna. Hún getur einnig hjálpað þér að sjá hindranirnar sem koma í veg fyrir að þú náir markmiðum þínum. Áherslan er á að vinna frá nútíð til framtíðar og styðja þig við að takast á við áskoranir og ná árangri.
Að ná markmiðum hraðar og auðveldar – hver vill ekki það?
Margir vilja sjá breytingar og hafa áhrif en upplifa oft að þeirra eigin áhrif séu óveruleg í stóra samhenginu. Þar getur markþjálfun hjálpað fólki að fara frá aðgerðaleysi yfir í virkni.
Markþjálfun fær oft fólk til að sjá nýjar lausnir og jafnvel finna upp á nýjum hugmyndum sem getur leitt af sér mögulega nýtt ferli. Við viljum líka flest að þetta ferli sé skemmtilegt og auki gleði og hamingju,“ Rannsóknir á markþjálfun, m.a. hjá kennurum, sýna að markþjálfun geti haft fyrirbyggjandi áhrif gegn kulnun og kvíða. Einstaklingur sem nýtur markþjálfunar tekst oft mun betur á við nýjar aðstæður.
Með hjálp spurninga og annarra „verkfæra“ færðu innsýn inn í hugsanagang þinn og hegðunarmynstur sem skapar þér möguleika til að gera þær breytingar sem þú óskar eftir. Það má vera að þú veljir að breyta ekki en þá er það meðvituð ákvörðun þín að gera ekkert og þú lifir í sátt og samlyndi við ákvörðun þína.
Markþjálfun er hvorki meðferð né ráðgjöf heldur árangursrík aðferð til að breytinga. Unnið er frá nútíð til framtíðar. Fortíðin er aðeins skoðuð til að þekkja sögu þína. Markþjálfinn hefur það hlutverk að laða fram þær lausnir sem þú sjálfur býrð yfir enda ert þú sérfræðingurinn í þínu lífi.

Markþjálfun hjá mér
Mín markþjálfun byggir á grunnþáttum og siðareglum markþjálfunar, skv. skilgreiningu International Coaching Federation, Science of Well-being, Neuroscience and Art theraputic life coaching. Með þessum aðferðum aðstoða ég viðskiptavini mína við að kanna hugarfar sitt, skilja hvernig hugurinn virkar, og hjálpa þeim að finna hæfileika sína og styrkleika. Finna út hvað hentar hverjum og einum best og hvernig þeir geta náð þeim áfangastað.
Með því að nýta grunnfærni, kjarnafærni og fylgja siðareglum, ásamt því að taka reglulega þátt í endurmenntun og markþjálfun, tel ég þetta vera mikilvægan þátt í mínum árangri vexti og þroska. Rannsóknir, stöðug menntun og virk þátttaka í markþjálfunarsamfélaginu hafa einnig skipt miklu máli í mínum vexti.
Það að taka þátt, læra stöðugt nýja hluti og stíga út fyrir þægindarammann, bæði faglega og persónulega, hefur verið lykillinn að mínum árangri. Þetta er einnig eitt af því sem ég hvet mína viðskiptavini til að gera.
Þinn þáttur
Það er mikilvægt að þú takir þig og framfarir þínar alvarlega til að fá sem mest út úr viðtölunum. Hluti af þessu er að þú gefir þér góðan tíma fyrir viðtalið og hugleiðir eftirfarandi:
- Að hvaða markmiðum vil ég vinna með markþjálfanum?
- Hvað vil ég fá út úr viðtalinu?
- Hverjar eru stærstu hindranirnar?
Til að hámarka árangur er gott að vinna heimavinnu milli þeirra. Reyndu að taka þér hálftíma fyrir hvert viðtal þar sem þú hugleiðir hvernig hefur gengið síðan síðast og hvernig þú hefur nálgast markmiðið og hvað þú vilt vinna með í næsta viðtali. Þú stjórnar alltaf ferðinni.
Útvegaðu þér dagbók og skrifaðu niður allt sem kemur í hugann. Það er auðveldara að halda utan um hugsanir, upplifanir og það sem þú vinnur með ef þú skrifar það niður. Það hjálpar þér líka til að fylgjast með hvernig málin þróast og hvernig þú yfirvinnur hindranir og nærð markmiðum þínum.
Fyrirkomulagið
Allir mínir fjarfundir fara fram í gegnum Kara Connect*, þar sem þú getur einnig bókað tíma ef þú kýst það.
Fundir eru 50 mínútur nema annað sé tekið fram.
Þú getur einnig haft beint samband við mig með tölvupósti ef þú vilt koma með tillögur, deila hugleiðingum, bóka markþjálfun eða hefur einhverjar spurningar.
Þegar þú hefur bókað tíma mun ég senda þér frekari upplýsingar í tölvupósti til yfirlestrar fyrir samtalið okkar.
Hlakka til að heyra frá þér 🙂
*Kara Connect hefur náð mikilvægu áfanga í skuldbindingu sinni til að viðhalda háum öryggisstöðlum með því að hljóta ISO 27001 vottun. Þessi vottun staðfestir stranga fylgni Kara Connect við alþjóðlega staðla og staðfestir innleiðingu heildstæðs upplýsingaöryggisstjórnunarkerfis (ISMS).
- Samræmist GDPR
- SSL/TLS
- Öruggur myndfundarstaðall
- Háþróuð dulkóðunaraðferð
Markþjálfun er marksækið, árangursmiðað og kerfisbundið ferli þar sem einn einstaklingur auðveldar öðrum einstaklingi eða hópi að öðlast varanlega breytingu með því að hlúa að sjálfmiðuðu námi og persónulegum vexti þess sem er í þjálfun. Markþjálfun er viðvarandi samband sem miðar að því að marksækjandi taki skref sem gera framtíðarsýn, markmið og óskir hans að veruleika.
Markþjálfi notar ferli spurninga og persónulegra uppgötvana til að efla vitund og ábyrgð marksækjandans. Hann veitir honum jafnframt aðferðir, stuðning og endurgjöf. Markþjálfunarferlið hjálpar marksækjandanum bæði að skilgreina og ná faglegum og persónulegum markmiðum hraðar og auðveldar en annars væri mögulegt.
Heimild: International Coach Federation.