{"id":258,"date":"2022-04-06T15:15:57","date_gmt":"2022-04-06T13:15:57","guid":{"rendered":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/2022\/04\/06\/something-good\/"},"modified":"2024-11-13T13:54:44","modified_gmt":"2024-11-13T13:54:44","slug":"something-good","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/is\/2022\/04\/06\/something-good\/","title":{"rendered":"Vel\u00ads\u00e6ld og \u00e1rangur \u00e1 fram\u00ads\u00fdnum vinnu\u00adsta\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><strong>Af hverju \u00e6tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 skipta m\u00e1li a\u00f0 huga a\u00f0 vels\u00e6ld starfsmanna?<\/strong><\/p>\n<p>Ranns\u00f3knir segja okkur svo enginn vafi s\u00e9 \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 huga vel a\u00f0 starfsm\u00f6nnum er lykilatri\u00f0i a\u00f0 \u00e1rangri. Lei\u00f0ir til a\u00f0 auka vels\u00e6ld eru margar og flestir stj\u00f3rnendur vilja tryggja vell\u00ed\u00f0an starfsmanna sinna. Margir vinnusta\u00f0ir hafa veri\u00f0 me\u00f0 starfsmannavi\u00f0t\u00f6l \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur vill \u00fea\u00f0 stundum ver\u00f0a til \u00feess a\u00f0 einungis s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 tikka \u00ed boxi\u00f0 sem partur a\u00f0 stefnu fyrirt\u00e6kis og ekki er eftirfylgni me\u00f0. Sem betur fer er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 mun algengara a\u00f0 sl\u00edk vi\u00f0t\u00f6l eru unnin af mikilli fagmennsku og fagf\u00f3lki me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed huga a\u00f0 styrkja mannau\u00f0inn \u00e1 vinnusta\u00f0num og huga betur a\u00f0 einstaklingnum.<\/p>\n<blockquote>\n<p style=\"text-align: center\"><strong>Mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 tryggja og auka vell\u00ed\u00f0an starfsmanna \u00e6tti a\u00f0 vera \u00ed forgrunni allra fyrirt\u00e6kja, \u00feannig aukast l\u00edkur til muna a\u00f0 n\u00e1 settum \u00e1rangri og sty\u00f0ja vi\u00f0 \u00e1framhaldandi \u00fer\u00f3un.<\/strong><\/p>\n<\/blockquote>\n<p>Miklar breytingar hafa or\u00f0i\u00f0 \u00ed starfsumhverfi s\u00ed\u00f0ustu 3 \u00e1r og er sveigjanleiki einn \u00feeirra breytinga, margt f\u00f3lk vinnur \u00ed s\u00edfeldu meira m\u00e6li heiman fr\u00e1 s\u00e9r og hefur ekki eins sterk f\u00e9lagsleg tengsl vi\u00f0 vinnusta\u00f0inn og \u00e1\u00f0ur. \u00dea\u00f0 veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 oft er erfi\u00f0ara fyrir stj\u00f3rnendur a\u00f0 greina m.a. kulnun og veikindi starfsmanna. A\u00f0rar breytingar eru einnig miklar \u00ed t\u00e6knim\u00e1lum og umhverfism\u00e1lum sem oft krefst mikillar uppstokkunar \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um. Breytingar geta reynst m\u00f6rgum erfi\u00f0ar og \u00fev\u00ed mikilv\u00e6gt a\u00f0 vel s\u00e9 a\u00f0 m\u00e1lum sta\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>Mark\u00fej\u00e1lfun er eitt \u00feeirra verkf\u00e6ra sem hefur veri\u00f0 a\u00f0 ry\u00f0ja s\u00e9r til r\u00fams \u00ed \u00edslensku atvinnul\u00edfi, og einstaklega hentug \u00ed \u00fev\u00ed \u00f3vissu og breytingaferli sem heimsbygg\u00f0in gengur n\u00fa \u00ed gegnum. Fj\u00f6lm\u00f6rg fyrirt\u00e6ki hafa n\u00e1\u00f0 m\u00e6lanlegum \u00e1rangri me\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r mark\u00fej\u00e1lfun. Erlendis hafa vinnusta\u00f0ir veri\u00f0 a\u00f0 nota a\u00f0fer\u00f0arfr\u00e6\u00f0i mark\u00fej\u00e1lfunar me\u00f0 miklum og g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri til fj\u00f6lda \u00e1ra og eru lei\u00f0togar og stj\u00f3rnendur margir hverjir samm\u00e1la um \u00fea\u00f0 a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r mark\u00fej\u00e1lfun er lykill a\u00f0 \u00e1rangri, auknum hagna\u00f0i og hefur j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 fyrirt\u00e6kjamenningu.<\/p>\n<p>Mark\u00fej\u00e1lfun er ekki l\u00f6gvernda\u00f0 starfsheiti h\u00e9r \u00e1 landi en ICF, International Coaching Federation, sem eru st\u00e6rstu \u00f3h\u00e1\u00f0u fagsamt\u00f6k mark\u00fej\u00e1lfunar \u00ed heimi er me\u00f0 \u00ferj\u00fa vottunarstig, ACC, PCC og MCC og starfa fj\u00f6ldi mark\u00fej\u00e1lfa h\u00e9r \u00e1 landi undir \u00feeirra si\u00f0areglum og h\u00e6fnis\u00fe\u00e1ttum. Mark\u00fej\u00e1lfar eru \u00ed st\u00f6\u00f0ugri endurmenntun til a\u00f0 vi\u00f0halda f\u00e6rni sinni, \u00feekkingu og breytingu \u00ed starfsumhverfi. En s\u00edfellt fleiri notast vi\u00f0 fjarfundarb\u00fana\u00f0 \u00ed s\u00ednu starfi.<\/p>\n<blockquote>\n<p style=\"text-align: center\"><strong>Mark\u00fej\u00e1lfun er \u00e1rangursmi\u00f0u\u00f0 og kerfisbundin a\u00f0fer\u00f0 sem leitast vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 einstaklinginn til a\u00f0 n\u00e1 settu marki. Finna og e\u00f0a auka styrkleika s\u00edna og pers\u00f3nulegan v\u00f6xt, sj\u00e1 n\u00fdjar lausnir og vi\u00f0halda \u00e1rangri.<\/strong><\/p>\n<\/blockquote>\n<p>Bj\u00f3\u00f0um starfsf\u00f3lki reglulega mark\u00fej\u00e1lfun og t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 \u00fer\u00f3ast og l\u00e6ra. N\u00fdtum okkur mark\u00fej\u00e1lfun \u00ed stj\u00f3rnunarst\u00f6\u00f0um og hugum \u00feannig a\u00f0 velfer\u00f0 og \u00e1rangri.<\/p>\n<p>Rakel Baldursd\u00f3ttir<\/p>\n<p><em>greinin birtist fyrst \u00e1 V\u00edsi 30. jan\u00faar 2023<\/em><\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Af hverju \u00e6tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 skipta m\u00e1li a\u00f0 huga a\u00f0 vels\u00e6ld starfsmanna? Ranns\u00f3knir segja okkur svo enginn vafi s\u00e9 \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 huga vel a\u00f0 starfsm\u00f6nnum er lykilatri\u00f0i a\u00f0 \u00e1rangri. Lei\u00f0ir til a\u00f0 auka vels\u00e6ld eru margar og flestir stj\u00f3rnendur vilja tryggja vell\u00ed\u00f0an starfsmanna sinna. Margir vinnusta\u00f0ir hafa veri\u00f0 me\u00f0 starfsmannavi\u00f0t\u00f6l \u00ed \u00e1ranna r\u00e1s [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":205,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":[],"categories":[1],"tags":[],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/258"}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=258"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/258\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":277,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/258\/revisions\/277"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/media\/205"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=258"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=258"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.icf-coaching.org\/rakel\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=258"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}